Einhverfurófið - grunnnámskeið
Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica
Dagsetning og tími: 25. janúar 2024. 9:00 - 14:00. 6 kennslustundir.
Verð: Fagaðili: 26.800.- Aðstandandi: 8.300.-
Hverjum er námskeiðið ætlað?
Námskeiðið er ætlað aðstandendum og starfsfólki sem sinnir umönnun, þjálfun og kennslu barna á einhverfurófi.
Hámarksfjöldi þátttakenda:
Á þessu námskeiði er hámarksfjöldi þátttakenda 50.
Lýsing námskeiðs:
Fjallað er um einhverfurófið, helstu einkenni einhverfu og birtingarform þeirra, greiningu, álag á fjölskylduna og samstarf foreldra og fagfólks. Námskeiðið byggist aðallega á fyrirlestrum og umræðum, auk fræðslumyndbanda. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið í fræðslu um einhverfu og grunnur að öðrum námskeiðum með afmarkaðari viðfangsefnum. Kennslu- og meðferðarleiðir verða til dæmis ekki kynntar á þessu námskeiði.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
- Auki þekkingu sína á einhverfurófinu
- Þekki hvað felst í greiningu á einhverfu
- Auki skilning sinn á þörfum þessa hóps barna og fjölskyldna þeirra og hvað felst í góðri þjónustu
- Þekki mikilvægi samstarfs fagfólks og foreldra
Umsjón:
Guðrún Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi, Ingibjörg Bjarnadóttir, barnalæknir og Svandís Ása Sigurjónsdóttir sálfræðingur.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Skráning í námskeið er skuldbindandi og jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Skráningu á námskeiðið Einhverfurófið - grunnnámskeið lýkur 19. janúar 2024.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna með því að senda tölvupóst á fraedsla@rgr.is.
Ráðgjafar- og greiningarstöð áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Nánari upplýsingar um greiðsluskilmála ásamt skráningar- og umsýslugjaldi má finna hér.