30.04.2021
Greiningar- og ráðgjafarstöð vekur athygli á að tveimur námskeiðum hefur verið bætt við í námskeiðsdagskrá vorannar. Annars vegar Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik þann 19. og 20 maí og hinsvegar AEPS, færnimiðað matskerfi 2. og 3. júní.
28.04.2021
Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar verður haldin á morgun fimmtudaginn 29. apríl . september og föstudaginn 30. apríl. Ráðstefnunni verður alfarið streymt frá Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. Ráðsstefna þessi er stærsti faglegi vettvangur þeirra sem tengjast börnum með þroskafrávik.
14.04.2021
Í ljósi núverandi samkomutakmarkana, sem taka gildi 15. apríl og standa í þrjár vikur, er ljóst að vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar 29. og 30 apríl verður alfarið haldin í streymi. Við stefnum því á að halda metnaðarfulla og áhugaverða ráðstefnu í því framúrskarandi tækniumhverfi sem Reykjavík Hilton Nordica hótelið býður upp á fyrir þátttakendur í streymi.
14.04.2021
Búið er að opna fyrir umsóknir í Sumarfríi fjölskyldunnar í Vík í Mýrdal og á Húsavík. Leikurinn verður því endurtekinn frá síðasta sumri og fjölskyldum fatlaðra barna boðið upp á sumarfrí og samveru.
14.04.2021
Skráning stendur yfir á fræðslunámskeið fyrir foreldra 13-18 ára barna með ADHD verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík laugardagana 17. apríl og 24. apríl 2021. Námskeiðið er bæði sent út beint í gegnum fjarfundabúnað sem og haldið í raunheimum.
13.04.2021
Framhaldsnámskeið í PECS boðskiptakerfinu verður haldið í Reykjavík 29. apríl 2021. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS.
06.04.2021
Þrjú áhugaverð námskeið fyrir aðstandendur og fagfólk sem vinnur með ungmennum með þroskaraskanir verða kennd í fjarkennslu á vegum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar í apríl.
06.04.2021
Tvær stöður félagsráðgjafa eru lausar til umsóknar á Greiningar- og ráðgjafarstöð. Önnur staðan er á Eldri barna sviði en hin staðan er á Yngri barna sviði og er tímabundin ráðning.